Ferðumst innanlands í sumar!
Viðráðanlegur valmöguleiki fyrir fólk sem vill ferðast um Ísland í sumar
Affordable Campers býður þér að tvöfalda Ferðagjöfina* við leigu á smá-húsbíl í 3 til 6 daga og þrefalda Ferðagjöfina* við leigu í 7 daga eða lengur.
Affordable Camper býður upp á nokkrar gerðir af tveggja manna húsbílum til leigu, allir eru þeir búnir með olíumiðstöð til að hafa hita yfir nóttina, eldhúsbox með gashellu, borðbúnaði, pottum, pönnu, skurðarbretti svo fátt eitt sé nefnt.
Einnig er rafmagnskælibox í öllum bílunum okkar til að halda mat og drykk köldum. Ferðastu frjáls á eigin vegum í sumar
*Aðeins ein Ferðagjöf er margfölduð við hverja leigu en þó er hægt að nota fleiri Ferðagjafir en eina til að greiða fyrir leiguna
Hvað fylgir með í leigunni?
- 24% virðisaukaskatt
- Þrif að innan og utan
- Sótthreinsun með ósóntæki
- Kaskótrygging (CDW)
- Slysatrygging farþega og ökumanns
Hvað fylgir bílunum okkar?
- Svefnaðstaða með svampdýnu
- Sængur og koddar
- Lak og sængurver
- Eldhúsbox með gashellu, borðbúnaði, skurðabretti, pottum og pönnum
- 21l kælibox
- Aukarafgeymir fyri olíumiðstöð, kælibox,lýsingu og 12v hleðslutengi
- Varadekk, felgujárn og tjakkur
Smá-húsbílarnir okkar



Caddy EX
Caddy Ex eru elstu bílarnir okkar en hafa þó allan sama búnað og aðrir bílar frá Affordable Campers. Sæti eru fyrir tvo og gistiaðstaða sömuleiðis fyrir tvo, fella þarf frammsætin fram og opna rúmið sem er 140sm breitt og 190sm langt, Gott farangursrými er undir rúminu. Caddy Ex er beinskiptur og bensín knúin.
Verð frá 6.500 til 10.000 kr á dag






Caddy Maxi
Caddy Maxi er lengri útgáfa af Caddy og því meira farangursrými undir rúminu og rúmið þarf ekki að fella fram eða breyta sætisstöðu framsæta. Rúmið er 140sm brett og 200sm langt. Caddy Maxi er beinskiptur og dísel knúin.
Verð frá 7.500 til 11.500 kr á dag






Caddy Maxi AT
Caddy Maxi AT er eins og Caddy Maxi nema með sjálfskiptingu fyrir aukin þægindi
Verð frá 8.500 til 12.500 kr á dag








Caddy Nýrri
Caddy nýrri eru nýjustu bílarnir okkar þeir eru af styttri útgáfu Caddy og eru því mjög meðfærilegir og auðvelt að keyra eftir þrengri vegum og bílastæðum. Fella þarf framsæti fram til að opna rúmið í fulla lengd. Rúmið er 140sm breitt og 190sm langt. Caddy Nýrri er beinskiptur og bensínknúin.
Verð frá 8.500 til 12.500 kr á dag
Tryggingar
Hér að neðan er þær tryggingar sem fylgja leigunni ásamt þeim aukatryggingum sem í boði eru. Leggja þarf fram kreditkort til tryggingar þegar bílinn er sóttur og skal það vera í eigu leigutaka og hann skal mæta í eigin persónu
Kaskótrygging (CDW)
Tryggir þig gagnvart tjóni sem þú getur valdið þriðja aðila og Kaskótrygging sjálfsábyrgðin er 375.000,- kr.
Fylgir

Slysatrygging farþega og ökumanns (TPL)
Er hluti af lögboðnum tryggingum allra bifreiða og er því innifalin í leigunni. Hún bætir tjón sem ökumaður og farþegi gætu hlotið í slysi
Fylgir

Súper Kaskótrygging (SCDW)
Súper Kaskótrygging lækkar sjálfsábyrgð í kaskó tjóni úr 375.000,- kr. Í 75.000,-
2.250,- kr. á dag

Steinkastsvörn (GP)
Bætir tjón af völdum steinkasti á gleri, framljósum og lakki bílsins. Bætir að fullu tjón af völdum steinkasts s.s. framrúðubrot.
1.500,- á dag

Sand og öskutrygging (SAAP)
Sand og öskutrygging bætir tjón af völdum sand og öskufoks sem sem tryggingar félög bæta ekki. Þessi trygging er því ekki tengd neinni annarri tryggingu. Sjálfsábyrgð tryggingarinnar er 120.000,- kr. En án hennar ber leigutaki alla ábyrgð
1.500,- á dag

Dekkja trygging (TP)
Bætir af fullu tjón á dekkjum og/eða vinnu við viðgerð. Tryggingin bætir þó ekki fluttning á verkstæði eða vegaaðstoð sem leigutaki gæti þurft á að halda
750,- á dag

Premium Pakkinn
Inniheldur SCDW, GP og SAAP í einum pakka og er sjálfsábyrgð 75.000,- fyrir SCDW og 120.000,- fyrir SAAP
4.500,- á dag

Platinum Pakkin
Platinum Pakkin innihedur allar okkar tryggingar með sjálfsábyrgð upp á 0,- kr.
7.500,- á dag

Spurningar? Hafðu samband við okkur!
